![]()
![]() Hér getur þú lesið eða hlaðið niður námskeiðadagskrá frá Námssetri Martinusar (Martinus Center) á ensku. |
Sem áhugamanneskja um alheimsfræði Martinusar, hefur þú möguleika á dýpka þína þekkingu og skilning á greiningum hans með því að taka þátt í námskeiðum og hlusta á fyrirlestra. Á hveru sumri býður Stofnun Martinusar (Martinus Institut) upp á alþjóðlega
námsdagskrá í Danmöku með fyrirlestrum, táknmyndaskýringum og leshringjum. Hér má sjá kynningu á Námssetri Martinusar (Martinus Center) ![]() Kennslan byggir afdráttarlaust á þeirri lífsskoðun og heimsmynd, sem sett er fram í ritverkum Martinusar. Með því að taka þátt í kennslunni gefst að auki tækifæri til að hitta annað áhugafólk í því innblásna og kærleiksríka andrúmslofti, sem einkennir hina nýu mannúðlegu heimsmenningu. Alþjóðleg námskeið eru haldin í tveimur síðustu vikum sumarnámskeiðanna, þ.e.a.s. oftast í enda júlí og í byrjun ágúst. Haldin eru námskeið á dönsku, sænsku, ensku og þýsku og jafnvel einnig á öðrum tungumálum. Hér má sjá nákvæma lýsingu á enskum fyrirlestrum og námskeiðum. Þú getur líka lesið og hlaðið niður allri ensku námsdagskránni (20 síður) Í fyrirlestrasalnum er útbúnaður til samtímatúlkunar og fyrir fólk með heyrnartæki. Í alþjóðavikunum er túlkað yfir á dönsku, sænsku, ensku, þýsku, hollensku og stundum fleiri tungumál, (þar á meðal íslensku). |



