|
Námssetrið… verður þannig hinn fyrsti skóli á jörðinni þar sem námsefnið er
vitsmunalegur kristindómur og alkærleiksrík heimsmenning.
(Martinus, áramótapistill 1979)
|
![]() |
![]()
|
Námssetur Martinusar (Martinus Center) í Danmörku er alþjóðlegt námssetur fyrir áhugafólk um alheimsmynd Martínusar. Námssetrið er staðsett út við sjóinn í fallegu og friðsælu landslagi nálægt þorpinu Klint ca. 110 kílómetra norðvestur af Kaupmannahöfn. Næsti stærri bær í nágrenninu er Nykøbing Sjælland. Árið 1935 stofnsetti Martinus hér sumarsetur eða sumarbúðir, sem með árunum hefur þróast í nútíma námssetur með fyrirlestrarsal, kennslustofum, grænmetis- veitingahúsi, námsmannaíbúðum og tjaldstæði. ![]() Námssetrið býður uppá öfluga kennslu og nám og er samtímis friðsæl vin fyrir andlega leitandi fólk. Hægt er að taka þátt í námskeiðum og hlusta á fyrirlestra og/eða dýpka þekkingu sína með því að sökkva sér sjálfur niður í þá heimsmynd, sem Martinus hefur lýst í ritverkum sínum. Auk þess er dýrmætt að fá innblástur frá þeirri björtu og jákvæðu stemmningu sem einkennir staðinn og ber þess merki að þátttakendurnir vilji styðja við þróunina í átt að nýrri og mannúðlegri heimsmenningu – í anda Martinusar. |
![]() |
Allir sem hafa áhuga á þessum fræðum og greiningum eru velkomnir á
námssetrið. Engum þarf að finnast hann bundinn af öðru en sínum eigin skilningi og fólk sem
sækir námsetrið til að dýpka skilning sinn á fræðunum, gerir það á eigin forsendum og án þess
að því tengist aðild að félagsskap af nokkru tagi. Flestir gestir námsetursins koma frá
Skandinavíu, en þangað kemur þó fólk alls staðar að úr heiminum, sérstaklega á alþjóðavikunum
á sumrin. |
![]() |
Starfsemi námssetursins Einnig eru haldnir fyrirlestrar, námskeið og vinnuvikur á öðrum tímum ársins. Á námssetrinu skapast góðir möguleikar á áhugahvetjandi umræðum, huggulegri samveru og mikilli lífsgleði í friðsælu og reyklausu umhverfi með fyrsta flokks grænmetisfæði. Sá möguleiki er líka fyrir hendi að leigja einhverja af vistarverum námssetursins t.d. íbúð eða herbergi, til þess eins að eiga rólega helgi eða lengri tíma í þessari friðsælu og fallegu náttúru. |





